Haustferð SES - 7. október 2026
Farið verður frá nýju Valhöll(Sjóvá húsið), Kringlunni 5 kl. 10:00, þann 7. október.
Frá Reykjavík verður haldið í Hveragerði og verður fyrsta stopp í Reykjaböðunum, nýjum böðum sem opnuðu fyrir stuttu. Við munum fá kynningu á böðunum og þar verður einnig hádegismatur sem er innifalinn í verðinu.
Því næst mun Friðrik Sigurbjörnsson, starfsmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í Hveragerði leiðsegja hópnum um bæinn og segja frá sögu þess.
Þá verður komið við á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands og fengið kynningu á þeirri flottu starfsemi sem þar fer fram. Þaðan verður síðan haldið yfir í Kjörís þar sem við munum fá að smakka á ís og fá að kynnast fjölskyldufyrirtækinu. Að lokum munum við heimsækja garðyrkjustöðina Flóru þar sem einn af eigendunum mun hitta okkur og segja frá starfseminni og fáum við að kíkja inní gróðurhúsin hjá þeim áður en haldið verður heim á leið.
Áætluð heimkoma er um kl. 17:00
Verð fyrir ferðina er 6.500kr. og er hádegismatur innifalinn.